Margmiðlun

Hérna ætla ég að skella inn verkefnum sem ég geri fyrir skólann. Ég er á upplýsinga- og fjölmiðlabraut og er að fíla mig í botn í því námi! Þetta er fyrsta önnin mín á þessari braut. Ég ætla að vinna við einhvers konar margmiðlun í framtíðinni.

Haustið ´06

MHL103 – Margmiðlunarhönnun/vefhönnun:

Í þessum áfanga áttum við að gera tvær vefsíður – þ.e. eina vefsíða um okkur og ýmis önnur verkefni & síðan lokaverkefnið þar sem við áttum að gera ítarlega síðu um eitthvað ákveðið efni. Auðvitað valdi ég að gera um Atmosphere – enda er ekki til neinn vefur sem er með fullt af upplýsingum, myndum og mp3-fileum um Atmosphere..Þetta er allt á mismunandi síðum.

Fyrri síðan:

mhl103lukkid.jpg

Til að skoða síðuna ýttu hér

Lokaverkefnið:

atmosphereindexprufa11.jpg

Til að skoða síðuna ýttu hér

MHL203 – Ljósmyndun:

Í þessum áfanga lærði ég grunnatriði í ljósmyndun, t.d. að taka á manual-filmuvél (hraði & ljósop), myndbygging, myndvinnsla bæði fyrir vef og prentun, o.s.frv.
Þessi áfangi er mjög skemmtilegur en samt erfiður. Það er alveg nóg að gera! Samtals gerði ég 8 ljósmyndaverkefni og 1 rannsóknarverkefni.

mhl203fireworks.jpg

Til að skoða síðuna ýttu hér

LIM103 - Listir og menning:
Þessi áfangi er sá skrítnasti sem ég hef tekið á þessu 2 og hálfu ári sem ég hef verið í framhaldsskóla. Fyrst skildi ég ekki upp né niður en fattaði það svo seinna. Það skiptir í rauninni engu máli hvort verkefnin séu eitthvað æðisleg heldur snýst allt um samvinnu. Þetta eru hópaverkefni út alla önnina – sem getur verið óendanlega þreytandi ! Gerðir voru tveir bæklingar á önninni og lærði ég því á forritið InDesign sem er umbrotsforrit.
Ég gerði bækling um arkítektúr í Moskvu árið 1929 – ein! Því aðrir í hópnum voru ekki alveg tilbúnir í að taka þátt í lokaverkefninu. Ég setti ekki nöfn tveggja aðila á bæklinginn þar sem þeir gerðu ekki neitt.
Bæklingurinn lítur svona út:

baeklingurlok22.jpg

baeklingurlok2.jpg

Aðrir áfangar sem ég tók á haustönn ´06 eru:

Fjölmiðlafræði – uppáhaldsfagið mitt, enda fékk ég 10 í lokaeinkunn.

Sjónlist – grunnteikning.

MHS103 – Margmiðlunarhönnunarsaga – ljósmyndunarsaga.

Þetta er skemmtilegasta nám sem hægt er að hugsa sér.