Þvílíkur sauður er ég! Ég bara gleymi að ég eigi þessa síðu :/ Hvurslags dónaskapur er þetta…
Jæja…
Margt og mikið hefur gerst síðan ég bloggaði síðast:
- Magga er komin heim.
- Ég er alveg flutt á Selfoss.
- Ég er full hverja einustu helgi.
- Búin að hanga mikið með Selfyssingum undanfarið.
- Skólinn er byrjaður og ég er strax komin með ógeð.
- Ég hélt smá partí síðasta lau.
- Ég hef aldrei á ævi minni verið jafn löt!
- og blönk!
Ég get ekki lýst því hversu löt ég er! Núna á ég t.d. að vera í skólanum! En hvar er ég? Uppí rúmi, nývöknuð! Ég fór heldur ekki í skólann í gær, á þriðjudaginn mætti ég ekki fyrr en hálf 12 (átti að mæta 8..) og á mánudaginn svaf ég til hálf 1 (átti að mæta 11)… Þannig í þessari viku er ég búin að fara samtals í 4 tíma… ég nenni ekki neinu. Ég nenni sérstaklega ekki að vera að keyra á milli en það er örugglega allt of seint að sækja um í fsu.. potter!
Jájá, lífið er svona yndislegt
Ég bara nenni ekki að blogga…. bleller!
Lag dagsins: Stunt – Raindrops
7 Ummæli
janúar 12, 2007 klukkan 11:09 pm
Þu ert löt og spez =D
Þú verður að fara að harka að þér =D
hahaha…..=)
Þúrt æði….
LÖV JÚ =*
janúar 12, 2007 klukkan 11:20 pm
jeijj

úhh ég hlakka til bústa’sins
elsk elsk =*
janúar 24, 2007 klukkan 12:09 am
Leti er algengur fylgifiskur hip-hops. Það er blankelsi líka. Svo ferðu í HÍ að stúdera fornleyfafræði en endar bara sem kassadama í Bónus. Vegna ódýrs sælgætis í þeirri búð ferðu á reykjalund þar sem þú verður greind með kransæðarstíflu. Þá rennur það upp fyrir ríkisstjórninni að það borgar sig ekki lengur að reka þig miðað við útgjöld (mat ofaní þig) svo að þú verður send til færeyja þar sem þú munnt lifa einmannalegu lífi með Basshunter.
Svo slökktu á eminem, kveiktá scooter. Tekknó er þín síðasta von. Það er enn séns!
janúar 26, 2007 klukkan 4:21 pm
Hahaha, ég er löngu hætt að hlusta á eminem!
Hlusta bara á eðal hip hop (h)
Ég mun ekki kveikja á scooter því það er glatað band… verð þó að viðurkenna að í gamla daga þegar ég bjó í þýskalandi þá fílaði ég þá… held ég hafi verið svona 11 ára!!
ég hef þó náð ákveðnum þroska síðan þá…
Híhí
ég hlusta samt á drum n bass sko !
janúar 30, 2007 klukkan 2:37 am
drum’n'bass segirðu? Mér er farið að lítast á þig
There is no such thing as eðal hip hop…(og nei, pussycat dolls eru það ekki, þær eru fínar á mute í pulsupartýum)
janúar 30, 2007 klukkan 8:17 am
Vá… einn sem misskilur hip hop algjörlega!!!
pussycat dolls eru ekkert annað en popp…
janúar 31, 2007 klukkan 1:20 am
þá ber þér, sem hiphop aðdáanda, skylda til þess að leyfa mér að hlusta á einhver af þínum uppáhalds hiphop lögum þegar hún Íris ákveður að kynna okkur hvort fyrir öðru