Mikið kætti Margrét litla svarta hjarta mitt í morgun þegar ég komst að því að hún hafi loksins sett inn myndir frá Suðureyjarferðinni. Ég hoppaði og grét í senn.
Hér er svo loksins rúsínan í pUlsuendanum:
Magga í rómantískri kantinum. Hún er ábyggilega að hugsa til bestu vinkonu sinnar ! sem er náttla ég!
Magga í hözzlinu! Eins og sjá má á þessari mynd er hún að wörka sjarmann og reyna að slá tvær flugur með einu höggi. Staðall hennar virðist hafa lækkað eitthvað síðan hún fór til Nýja Sjálands.
Magga aftur að wörka sjarmann en virðist ekki alveg fá náungann á sitt band. Aldur er svo afstætt hugtak, sama mætti segja um fegurð karla ef marka má þessa mynd. Þau mættu aðeins samræma fatastílinn áður en þau fara á opinber stefnumót.
Margrét hefur verið dugleg að taka lýsið sitt, eða eins og Ný Sjálendingar myndu kalla Lysie (borið fram læsí). Þú ert svo mikill víkingur Maggie!
Enníweis…
Ég ætla ekkert að fara að tala um sjálfa mig neitt, þar sem voðalega lítið er að frétta af mér. Ég er bara að vinna eins og brjálæðingur og einbeiti mér að náminu. Skelli þó bráðum línknum á ljósmyndaverkefnin mín um leið og ég er búin að breyta þeirri síðu í sómalegt ástand!
Lag dagsins: AFI – Prelude 12/21
8 Ummæli
október 23, 2006 klukkan 4:13 pm
EN SKEMMTILEGT BLOGG =D
greynilegt að hún Margrét sé farin að sakna okkar ég sé það í augunum á henni ……!
október 23, 2006 klukkan 9:21 pm
ég sé það líka þennan sterka sakn glampa!
ég sakna hennar líka, en þetta styttist og styttist!
október 23, 2006 klukkan 9:39 pm
hahaha… hvad ertu ad dissa mina menn!!! teir eru bara fullkomnir eins og teir eru… innri fegurd skiptir mali !!
btw… viltu senda mer tennan link tar sem sidan virkadi ekki sidast.!
takk og baej
október 24, 2006 klukkan 1:23 pm
ahh magga ástfangin en skemmtilegt… koddu með þá heim =Þ
október 25, 2006 klukkan 11:39 am
Já það sjást svo sannarlega söknuðatárin í augum Margrétar.
Ég var ekki að dissa þína menn, Margrét. Ég vona að það gangi ykkur allt í haginn í framtíðinni. Ef gamlinginn þinn er ríkur þá mæli ég með því að þú drífir þig í að giftast honum. Hann virðist ekki eiga nema ca. 3 mánuði eftir ólifaða.
Ég skal senda þér þennan link um leið og ég er búin að breyta myndasíðunni. Hún er ekki mönnum bjóðandi í augnablikinu.
Ég styð Írisi í því að við viljum fá karlmennina sem þú elskar heim til Íslands!
Við borgum flugmiðana =D
Ég vona samt að þeir séu ekki fleiri en tveir!
Eru þeir kannski fleiri ? :S
Magga hözzlerinn þinn
Ég gef þér hér með titilinn minn sem “hözzler” sem ég fékk frá þér fyrir nokkrum árum!
Til hamingju :*
október 26, 2006 klukkan 2:02 pm
haha jáh þú svona að gefa möggu The hözzler crown =D
október 26, 2006 klukkan 7:03 pm
Hehe jámm =D ég vona að hún fari vel með kórónuna!
október 27, 2006 klukkan 4:23 pm
Magga er svo hrikalega mikill höster.. toppar okkur allar sko!! Hehe.. en ég tók líka eftir þessum svaka söknuðar glampa.. híhí..