september 29, 2006...8:38 am

D´oh!

Jump to Comments

Klukkan er 8:18 á föstudagsmorgni. Ég sit í matsalnum og það er frí í fyrstu tveimur tímunum.. D´oh!

Sumir gætu spurt sig: ” Afhverju fer hún ekki heim að sofa?”

Já það er nú góð og gild ástæða fyrir því, krakkar mínir. Í fyrsta skipti í sögu skólagöngu minnar í Borgó náði ég að leggja í stæði nálægt skólanum, nánar tiltekið í fyrstu röðinni. Þetta hefur aldrei á minni stuttu ævi gerst! Afhverju ætti ég að eyðileggja þetta hamingjusama móment? Afhverju ætti ég að sætta mig við verra stæði? Alltaf hef ég þurft að leggja á hræðilegum stöðum sem eru ca. 50 m frá skólabyggingunni. Á hverjum degi hef ég þurft að klæða mig í gönguskóna þegar ég stíg út úr bílnum svo ég geti labbað vandræðalaust í tíma. Vöðvarnir finna til og væla. Ég byrja að svitna og þreifa mig í átt að skólabyggingunni og græt. Ég dett og það munar litlu að ökuníðingur keyri yfir mig. Þvílík harmsaga. Afhverju ætti ég aftur að lenda í því? Á ég ekki skilið að leggja í almennilegt stæði þar sem maður þarf ekki að hlaupa kílómetra í skólann? Eða er heimurinn einfaldlega á móti mér og finnst ég vera feit? Finnst þér kæri lesandi, ég feit?!?!

Nákvæmlega!

Hahaha… jæja, þetta var dramatísk frásögn!

Nú skiljið þið vonandi afhverju ég fer ekki heim.

Ætli þetta sé ekki komið gott.

98 dagar í heimkomu Margrétar Hönnu bestu vinkonu minnar ! 8 mánuði hef ég þraukað án bestu vinkonu minnar. Það útskýrir afhverju ég hef ljókkað svona.. Ég vona að orðið “ljókka” sé til.

Ég ætla að snúa mér að því sem ég geri best. Horfa á The Simpsons.

Lag dagsins: Muse – Starlight

4 Ummæli


Skildu eftir svar