september 25, 2006...11:53 am

Lisa, Vampires are make-believe, like elves, gremlins, and eskimos

Jump to Comments

Góðan og blessaðan daginn, eru ekki allir í stuði ?

Ég er svo sannarlega í stuði kl. 11:18 á laugardagsmorgni!

Helgin er afstaðin og var hún án efa mjög leiðinleg, eins og helgin þar á undan. Hvað er í gangi? Ég er komin með fráhvarfseikenni vegna skorts á skemmtun. Ég var að vinna á kvöldvakt á föst, lau og sun og var líka dugleg að læra. Gerði loksins þessa heimasíðu í Margmiðlunarhönnun svo ég geti skellt ljósmyndunum mínum þar inná. Skelli linknum á síðuna um leið og hún er fullkláruð ! Ég trúi ekki hvað ég er dugleg í skólanum, miðað við í fyrra. Ég get nú ekki einu sinni sagt að ég hafi lært almennilega heima á síðustu önn … nei heyrðu, á síðasta ÁRI.

Á laugardagskvöldinu eftir vinnu kíkti ég á rúntinn með Írisi og Hillu Pillu. Það var hressingur. Bjargaði þessari glötuðu helgi. Hjörtur hringdi í Írisi og bað okkur um að sækja sig. Það gerðum við og þegar Hjörtur settist “hress” í bílinn fékk ég smá flashback sem minnti mig á síðasta skemmtilega atvikið þegar við sóttum Hjört af djamminu. Hihihi… Semsagt endaði 10-mínútna ferðin í Grafarholtið í klukkutíma-ferð þar sem við stoppuðum á ýmsum stöðum svo að Hjörtur gæti losað sig við áfengið og ýmislegt annað, þ.e. hann þurfti að æla. Ég hef ekki hlegið svona mikið í margar vikur ! Þetta hljómar eins og ég sé algjör viðbjóður að hlægja að ælandi manni, en þetta var einum of fyndið þar sem við keyrðum á ofsahraða að reyna að beygja inn einhverjar götur og bílastæði svo hægt sé að stoppa svo Hjörtur æli ekki í bílinn. Alltaf munaði mjóu, en sluppum þó með skrekkinn.
Síðan skutluðum við Hirti heim og Íris ætlaði að skutla mér heim og hafði hún áhyggjur af því að Hjörtur væri dauður í íbúðinni. Ég fór að ímynda mér Írisi samanhnipraða á útidyramottunni – en Íris minnti mig á það að ef ske kynni að hann væri dauður myndi hún nú bara keyra heim til sín í staðinn fyrir að sofa fyrir utan. Silly me!

Að lokum nokkur vel valin orð af honum Homer, besta vini mínum.

Homer: Are you saying you’re never going to eat any animal again? What about bacon?
Lisa: No.
Homer: Ham?
Lisa: No.
Homer: Pork chops?
Lisa: Dad, those all come from the same animal.
Homer: Heh heh heh. Ooh, yeah, right, Lisa. A wonderful, magical animal.

Marge: Homer! There’s someone here who can help you…
Homer: Is it Batman?
Marge: No, he’s a scientist.
Homer: Batman’s a scientist?!
Marge: It’s not Batman!

Marge: This is the worst thing you’ve ever done.
Homer: You say that so often that it lost its meaning.

Homer: There’s your giraffe, little girl.
Ralph Wiggum: I’m a boy.
Homer: That’s the spirit. Never give up.

Homer: [Looking at a globe map...country being Uruguay]
Hee hee! Look at this country! ‘You are gay.’

simpsons-the-homer-simpson-sitting-4001443.jpg

12 Ummæli

  • haha ég hló mig máttlausa í þessu bloggi =D
    Æðislega skemmtilegt blogg fýlaða vel…

    Ahh man eftir þessum simpsons þætti, hressand biti =D úf of fyndið ;)

    GÓÐUR =D

  • Hahaha, “Your a gay..”

    Nokkuð gott :D
    Virkilega gott blogg ;)

  • hahahaha gladdi mig mikið þetta blogg :D
    meira svona takk fyrir :P

  • sá sugarpillows síðuna í linkum á b2 og fór að skoða þar….það skoð leiddi mig hingað…ég ætlaði að setja þessar línur í gestabókina hér ennn ég er ekki alveg að finna hana þannig að ég smelti þessu bara hér! :p

    skemmtilegt blogg hjá þér (sérstaklega homer) sá mynd á SP síðuni og varð að skoða meira…hehe…

    ég er að spá í að enda á sameignlegum vin að nafni homer!

    Homer: Hello my name is mr.Burns I beleve you have a letter for me?
    Post office worker: Yes mr. Burns, what’s your first name??
    Homer: I don’t know….

    þakka fyrir mig… þú ert velkominn á síðuna mína…….þ.e.a.s ef þú vilt….

    Lydz4

  • Hehe hann Homer minn virðist vera soldið vinsæll enda er hann algjör æðibiti…

    Vil þakka hrósunum um þetta blogg, þau eru vel þegin ;)

    Híhíhí

    “Mmmmhhhh doooonnnnuuutttt”

  • haha hefuru séð þáttinn þegar hann var klónaður =D
    fullt af hómerum… að hlaupa eftir HUGE donut =D snilld !

  • Hi there! Just couldn’t resist your guestbook! Please visit my site too:

  • Yo! Cool stuff! Thanks for being here. Please also visit my site:

  • Hey bro! Well Done! Visit my sites, please:

  • First time here on your site. I am delighted to find your wonderful website online. Would you please also visit my homepage?

  • 20six co uk 9 discount link phentermine


Skildu eftir svar