ágúst 11, 2006...4:49 pm

Ein með öllu

Jump to Comments

Þá er maður kominn aftur á hið ehh… yndislega.. Suðurland. Ég var farin að sakna allra spoileranna hérna á Selfossi..Mikið hefur drifið á mína daga að undanförnu. Eitt er alveg tíbískt, það gerist ekkert merkilegt allt sumar en neinei, svo þegar sumarið er að klárast skellist allt klabbið á eina helgi. Ég er nú einu sinni mennsk og ræð ekkert við þetta allt í einu. Hver stendur á bak við þetta ? Ha???

Á miðvikudaginn kom ég úr viku ferðalagi. Ferðalagið var alveg yndislega skemmtilegt..á köflum. Afhverju þarf dramatík að vera til ? Geta ekki bara öll dýrin í skóginum verið vinir? Það góða við dramatík er, að eftir að hafa kyngt ákveðnu magni af drama þá fer maður að útiloka hitt dramað. Það þarf bara að taka kæruleysið á þetta.

Akureyri stóð fyrir sínu. Ég elska Akureyri. Akureyri er yndislegur staður. Áfram Akureyri ! Mig langar strax aftur að fara þangað.. Ég er komin með svo mikið ógeð af Reykjavík, að það er ekki eðlilegt. Ef ég ætti pening, myndi ég skella mér útí bíl og keyra eitthvert út á land á útihátíð. Mér finnst fólk sem býr út á landi miklu skemmtilegra en þetta ofdekraða bæjarpakk.

En jæja…Ég fór semsagt með Eyrúnu, Diljá, Andra og Axel til Akureyrar og vorum við á tjaldsvæðinu við Þórsheimilið. Mikil stemning var þar og tók ég ekki einu sinni eftir einhverjum slagsmálum eða leiðindum! Nema tvö atvik, sem voru mjög kjánaleg. Þrátt fyrir allt skemmti ég mér konunglega og kynntist ég frábæru fólki.
Á mánudaginn var ferðalaginu haldið áfram (ég var nú samt ekki alveg tilbúin að yfirgefa Akureyri) og skelltum við okkur til Hólmavíkur og á þriðjudeginum skelltum við okkur í heimabæ Golla, Drangsnes. Óendanlega krúttlegur staður. Híhí. Þar fórum við í pottana og skemmtum okkur konunglega.

Ahhh ég er svo mikill hálfviti að hafa hætt við að taka myndavélina til Akureyrar. Hefði verið gaman að eiga minningar frá þessari helgi. En jæja, ætli maður þurfi ekki að geyma þetta í hausnum einhversstaðar.

Síðan verð ég að minnast á partíin sem Eyrún hélt fyrir 2 vikum og voru þau öll skemmtileg. Held ég hafi tekið samtals 10 myndir!

Hér eru allavegana 2 þeirra :

Diljá og ég

mona-og-dilja.JPG

Sævar Ari og ég

saevar-og-mona.JPG

Móna Selfyssingur kveður að sinni,
hafið það gott !

Ætla ekki allir á Gay-Pride og Menningarnótt ? ;)

6 Ummæli


Skildu eftir svar