Obbosí, voðalega er langt síðan ég bloggaði síðast. Sjiii! Mikið búið að vera að gera undanfarið. Ég er búin að vinna eins og brjálæðingur þrátt fyrir veikindi. Síðan er maður búinn að vera að hanga með kæró og svoleis rólegheit.
Eins og ég hef sagt svo oft frá þá voru Atmosphere tónleikar 12. Júlí síðastliðinn, semsagt fyrir nákvæmlega 8 dögum. Þetta voru frábærir tónleikar, bestu tónleikar sem ég hef farið á. Fram komu Dóri DNA, KJ, Bent, 7berg, Brother Ali og síðast en ekki síst Atmosphere. Ég var fremst allan tímann þannig ég var með fínt útsýni og stemningin var alveg galin. Það var mikið dansað. Mikið, mikið, mikið.
Svo ég fái aðeins að monta mig þá langar mig að segja frá því sem gerðist á þessum tónleikum. Ekki nóg með það að ég var fremst allan tímann þá tók hann Slug kaddlinn í hendina mína og ég hélt ég myndi deyja. * Ég veit að þetta er mjög gelgjulegt og “grúppíulegt” bött æ dónt giff ei bigg redds ehs. * Eftir tónleikana spjallaði ég við Slug og hann er mjög næs gaur, eins og mig grunaði. Slug gaf mér geisladisk =D =D =D og skrifaði á hann og teiknaði stórt hjarta. Það var mjög gaman hjá mér. Það sem er enn merkilegra er að ég á mynd af honum og mér SAMAN. Tíhí, ég er svo mikil gelgja =)
Nú get ég dáið hamingjusöm og get loksins sagt “ég lifði lífinu!”. Þannig ef ég fæ skyndilega krabbamein eða heilablóðfall þá er það alltígúddí.
Það var mögnuð lífsreynsla að hitta manneskjuna sem maður gjörsamlega dýrkar og dáir. Slug er svo hæfileikaríkur að það er ekki eðlilegt. Hann er snillingur.
Brother Ali er alveg frábær líka.
=D =D =D
Að lokum vil ég sýna nokkrar af myndunum sem ég tók. Hinar myndirnar eru í “Myndir” hér að ofan. Enjoy
- Slug og ég -

- Slug -

- Brother Ali -

- Slug og Brother Ali -
- Diskurinn sem Slug gaf mér. Vinsamlega takið eftir hvað hjartað er stórt, haha -
Ég kveð að sinni,
mí iss át.
Lag dagsins: Atmosphere – You make me wanna
6 Ummæli
júlí 20, 2006 klukkan 6:53 pm
ÍHHHHHHH =D ég veit ekkert hver þetta er en ég er SVO ÁNÆGÐ =D
Gaman að sjá þessa nýju síðu… ég er að fýla hana
júlí 20, 2006 klukkan 7:06 pm
Er haggi =D Mér finnst hún allavegana skárri en hin..
Hin var alltaf að bila og svona, hún hlýddi mér ekki, óþekktaranginn
ÍHHHHHHH =D
júlí 21, 2006 klukkan 12:03 am
JEI geggjað

ps: flott síða
sakna yðar kærlegheits
júlí 21, 2006 klukkan 12:57 am
hahahahah…. mona og vefsidur!!! tu ert storkemmtileg kjella!
En tilhamingju med tetta allt saman… !! Gott ad vita ad tu deyrd anaegd ta… eg tarf ekki ad hafa neinar ahyggjur af ter hahaha!
Tangad til naest!
btw.. flott sida! betri en allar hinar
júlí 22, 2006 klukkan 10:45 am
Híhí takk takk elskurnar mínar ;*
Ég er ánægð með þetta kvikindi, þarf nú samt að vinna meira í henni
Lova ykkur ;*
júlí 22, 2006 klukkan 11:36 am
yeahh =D=D=D