Ahhhhhhh kósí !
Ég er stödd í miðbæ Reykjavíkur. Nánar tiltekið Miðstrætinu. Í íbúð. Krúttlegri íbúð. Með gluggum. Veggjum. Hurðum. Dóti.
Snorri er farinn til DK ! Þannig ég hef íbúðina hans fyrir mig eina á meðan. Næs.
Afhverju er ég í himnaríki tónlistaraðdáandans? Ég skal svara þeirri spurningu með glöðu geði ! Þannig er mál með vexti að hann Snorri Þór er mikill tónlistaráhugamaður og á þar af leiðandi gríðarlegt magn af tónlist. Ég endurtek: Gríðarlegt magn. 70 gígabæt. Ég hef aldrei á ævi minni verið jafn hamingjusöm og núna. Mér finnst ég valhoppa í grænu engi með fallegum og litríkum blómum. Hoppedí-hoppedí-hopp… Þangað til ég misstíg mig og dett… Já því gott fólk, einhverndaginn kemur raunveruleikinn og fellur mann með sínum ógeðslegu svörtu, mygluðu löppum.
Enníweis…
Um daginn dreymdi mig stórfurðulegan draum. Ég er farin að efast um geðheilsu mína. Ég man ekki hvernig draumurinn byrjaði en ég var í einhverjum heimavistaskóla, sem var byggður ofaná íþróttahús. Mikil steypa átti sér stað. Allt í einu labba ég inná þessa stórskrítnu heimavist og sé að fullt af stelpum horfa illilega á mig. Þær ætla að ráðast á mig. Mér finnst mikilvægt að segja frá því núna strax í byrjun að á því augnabliki sem ég labbaði inná heimavistina þá held ég á barni í bílstól. Ég átti víst barnið. Það var stelpa og hún var ótrúlega sæt og falleg. Það er enn ein ábendingin að mig hafi verið að dreyma, því allir sem hafa séð mig vita að ef ég myndi einhvern tímann eignast afkvæmi myndu þau líkjast sætu krílunum í Lordi. En alltílæ, snúum okkur aftur að blóðóðu stelpunum. Þær ætluðu semsagt að ráðast á mig. Og hvernig haldiði að snillingurinn hafi varið sig ? Með því að ógna þeim með tannstöngli. Já tannstöngli. Þetta var svo kjánalegt eitthvað. Ég held samt að ég hafi losnað við þessar stelpur. Já, tannstönglar eru ekki einungis til að þrífa burt óhreinindi milli tannana og til að falsa skilríki.
Síðan endaði draumurinn á því að ég sýndi einhverjar fimleikakúnstir í íþróttahúsinu fyrir neðan heimavistina.
Í kvöld hitti ég kópavogsskvísurnar mínar og ætlum við að miðbæjast. Það er yndislegt að búa í miðbænum. Útsýnið úr eldhúsinu er ameisíng. Íbúðin er yndisleg. Nóg af tónlist, bíómyndum, Sigur Rósar tónleikum og öðru þrælskemmtilegu dóti. Ekki má gleyma miðbæjarstemningunni.
Afhverju getur lífið ekki alltaf verið svona ? Afhverju þarf þessi helvítis “Raunveruleiki” að eyðileggja allt með skítugu tánum sínum ?
Maður spyr sig.
- Lög dagsins: She wants revenge – Tear you apart , Sugar Cubes – Birthday, Sigur Rós – Viðrar vel til loftárasa (live).-
P.S. Vil biðjast afsökunar á því að ég sé ekki að láta heyra neitt í mér þessa dagana. Það er svo brjálað að gera hjá mér :/ Fyligellu ;*

12 Ummæli
maí 27, 2006 klukkan 7:09 pm
jei ég hlakka til að koma þangað í kveld ef það verður


jei en gott að sjá blogg hjá þér aftir og veistu börnin þín verða falleg eins og þú!
lordi krílin eiga ekki heima hjá þér !!
elsk þig =*
maí 27, 2006 klukkan 7:09 pm
jei ég hlakka til að koma þangað í kveld ef það verður


jei en gott að sjá blogg hjá þér aftir og veistu börnin þín verða falleg eins og þú!
lordi krílin eiga ekki heima hjá þér !!
elsk þig =*
maí 27, 2006 klukkan 7:11 pm
ops ýtti 2 :S eyddu bara einu :Þ
maí 28, 2006 klukkan 8:22 pm
sillybilly, en ég veit hvar þú fékkst þessa gorgeous mynd ;P stumbesomething…kúúúl!
maí 28, 2006 klukkan 11:46 pm
‘uhh kósýheit maður!!! Díses væri maður til í að eyða smá tíma í svona kósýíbúð og náttla bara stemmning með staðsetningu
maí 29, 2006 klukkan 4:02 am
“Ég man ekki hvernig draumurinn byrjaði en ég var í einhverjum heimavistaskóla, sem var byggður ofaná íþróttahús. Mikil steypa átti sér stað”
þetta var s.s. ekki timburhús… eða?
djísus hvað ég væri til í miðbæjar-íbúð! Amma er svoo heppin! og þú núna líka! eníveis… skemmtu þér og ekki drekka of mikið
maí 29, 2006 klukkan 8:09 pm
hahaaha magga!!
júní 9, 2006 klukkan 12:45 pm
blogga svo!
júní 11, 2006 klukkan 6:34 pm
ömm síðan er í fokki hjá þér :S
júní 11, 2006 klukkan 8:54 pm
þetta er kannski eitthvað svona mónu-málíska
júní 12, 2006 klukkan 2:45 pm
hahahaha
það er allavegana mónu líkt
júní 13, 2006 klukkan 3:03 pm
hihi ég er að reyna að laga hana
en ekkert virkar !
Er búin að rembast og rembast og rembast !
En neijnei,
eitthvað er ég að gera vitlaust :/