Hrikalega er þægilegt að komast á netið ! Aaaahhhh kósí !
Nú er maður aðeins kominn heim til Mömmsu og kemst ég þar af leiðandi á netið. Hér sit ég ásamt honum Daníeli og erum við bara að slappa af og er ég ekki lærandi.. Kemur ekki á óvart :/ Hvað með það.. Hver segir að heimskt fólk geti ekki náð árangri ?
Myndir eru væntanlegar frá “Peysó í fjórðó” – þarf bara að yfirstíga letina og þá set ég þær á netið, semsagt eftir nokkrar vikur.
Neinei, ég fer að drífa í þessu.. Lofaði líka bekknum að setja þær á netið.
Prófin eru byrjuð.. Íslenskan búin.. Hver í andskotanum er Sigríður frá Sandnesi ? Þessi kvennsa fær heiðurinn á því að ég fæ ekki mörg stig á prófinu !
Hér er smá sýnishorn úr væntanlegum myndum frá hinum þrælgóða ljósmyndara Mónu R. Becker. Ég ætti að fara að lesa leiðbeiningarnar. Haha reyndar tók ég ekki þessa mynd… Nú jæja. *Awkward*
Lag dagsins: Amerie – One Thing
Híhí gelgjulag..éveid =)

12 Ummæli
maí 3, 2006 klukkan 8:16 pm
HAHA Akward…..! Váh bara snilld =)
Mér hlakkar til að sjá þessar myndir
Þú ert svo hress nebbla
Skemmtileg bíóferð í gær, fýlaði hana….!
Knús og koss…
Sakna þín þanna selfoss beib
maí 4, 2006 klukkan 5:18 pm
Miss Móna, ég panta að fá eina mynd af þér í peysufötum takk. Spýttu svo í lófanna og náðu 8 í einkun í ÖLLUM fögum.
maí 4, 2006 klukkan 7:07 pm
Hehehehehe sooo awkward!* en flott mynd marr! djöfull erum við hot ;P hlakka til að sjá meira… af þér! grrr
maí 5, 2006 klukkan 4:00 am
Ég er allveg furðulostin frk. MRB!
Ég heimta blogg frá þér og eitt kílómetra langt ímeil!
ef þessum kröfum verður ekki náð kem ég brúnni en þú heim !! múha!
kveðja… lenín!
p.s. sæt mynd
p.s. ég er abbó…
maí 5, 2006 klukkan 9:40 pm
Íris: Myndirnar koma bráðum inn… eins og ég segi, það er stærðfræðipróf á mánudaginn og auðvitað mun ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að gera eitthvað allt annað
Sakn jú tú ! :*
Ég fýlaði líka bíóferðina =)
*KNÚSSSSSSSSS*
Geitó: Hehe æjjji nú vil ég ekki valda ykkur vonbrigðum en ég get ekki orðið að þeirra ósk að ná 8 í ÖLLUM fögum..Ég er þegar búin að fara í tvö próf sem ég mun ekki fá 8 á.. Ekki afneita mér. Það hlýtur að vera eitthvað gott við mig.. vonandi! he he.. Annars sakna ég ykkar nú í Geitlandinu! Kem bráðum í heimsókn =)
Diljá: Já ég veit nú ekki hvort þú sért eitthvað hot sko… Þú hlýtur að vera eitthvað myndarleg þegar ég tek gleraugun af mér. HIHIHIHI djók beibið mitt, þú ert langflottust !
Magga: Afhverju ertu furðulostin ástarengillinn minn? Kílómetra langt ímeil?? Úff ég skal reyna..
Afhverju er frúin abbó?
maí 5, 2006 klukkan 11:17 pm
Sykursnúður, við afneitum þér nú ekki, en ok allt fyrir ofan fall einkun er alright. Þú verður að kíkja í mat einhv. tíman þegar þú er laus ok, söknum þín líka. Kv
maí 7, 2006 klukkan 11:24 pm
Ég skal kíkja til ykkar bráðum
Er búin í prófunum 15. maí
maí 8, 2006 klukkan 4:05 am
kílómetra langt ímeil ætti ekki að vera erfitt ef ég þekki þig rétt… haha ég var orðin frekar óþolinmóð (mér leiddist) svo ég sendi þér einn metra eða svo.. fékkstann??? hhaa?? Ég er nú ekki einu sinni byrjuð í prófunum… múha…
gúdd lökk.. and mei þí fors bí viþþ jú!
maí 8, 2006 klukkan 5:23 pm
Ég held ég hafi staðið mig ágætlega í kílómr. langa emailinu
Er þaggi?
Næsta email þitt má nálgast kílómeterinn 
Tell mí everíðíng abát júr læf inn ðe nýjó…
Bojj =)
maí 9, 2006 klukkan 9:13 pm
Get any Desired College Degree, In less then 2 weeks.
Call this number now 24 hours a day 7 days a week (413) 208-3069
Get these Degrees NOW!!!
“BA”, “BSc”, “MA”, “MSc”, “MBA”, “PHD”,
Get everything within 2 weeks.
100% verifiable, this is a real deal
Act now you owe it to your future.
(413) 208-3069 call now 24 hours a day, 7 days a week.
maí 10, 2006 klukkan 10:56 am
Rétt. Heimskt fólk getur náð árangri.
Og Jóa, allt fyrir ofan fimm er óþarfa vinna.
maí 10, 2006 klukkan 2:50 pm
Mig langar í College Degree á tveim vikum… JEIJJJ!
Hihi hversu heimskt er fólk ?
Maggi: Gott að þú sért sammála
Við heimskingjar þurfum að standa saman! Einnig er ég sammála því að allt fyrir ofan fimm er óþarfa vinna. Heyriru það Jóa?
Góð lífsspeki þar á ferð!–>