Ég rakst á slúðursíðu sem er mjög skemmtileg. Ég held ég hafi eytt 4-5 klukkutímum í að skoða hana. Ég veit. Þetta er sjúkdómur. Ekki dæma mig.
Mikið er búið að gerast undanfarið. 1. apríl er ég að flytja í Grafarvoginn en famelían er að flytja úr bænum. Ég vil ekki vera landsbyggðafrík.
Ég er búin að pæla mikið undanfarið og er ég að spá í að skipta um skóla. Já, ég er ekki alveg að fíla mig í Verzló. Ég held að Borgó sé málið. Ég ætlaði alltaf í Borgó en hætti við á síðustu stundu. Ég vil vera í áfangakerfi. Þannig miklar líkur eru á því að við Diljá klárum önnina okkar í 4-R og gerumst svo Borgarar. Þá get ég líka verið meira með Írisi, Hildi og Beggu. Leiðinlegt samt að Grímur sé hættur í Borgó! En jæja svona er þetta.
Er að spá í að hafa stutt blogg svona til tilbreytingar. Hvernig væri það nú ha…
Talandi um asnalegt og sjálfselskt fólk þá rakst ég á mjög asnalegt og nánast sagt hræðilegt og sorglegt vídjó. Kevin Federline aka K-Fed er hérna að kynna lag sem heitir PopoZao. Þar dillar hann sér í takt við þetta hræðilega lag sitt og lætur eins og þetta sé besta lag í heimi. Þessi náungi er aumingi.. síðan er hann líka mjög ljótur. Hvað sér Britney við þennan gaur? Ewwwwww..
Síðan ætlaði hann að láta gera gat í eyrun á syni sínum og Britney varð víst alveg brjáluð. Greyið krakkinn er bara nokkra mánaða gamall.
Að lokum má sjá mynd af Janet Jackson. Já þetta er hún. Soldið breytt kjeddlan.
Kv. Móna veiklingur
P.S. Þið eruð krútt.


4 Ummæli
mars 15, 2006 klukkan 10:11 pm
Þú ert krútt
Ég er sammála öllu í þessu bloggi =D=D
mars 18, 2006 klukkan 7:46 pm
Jeijjjj =D Íris Sammálari!
Þú ert sjálf krútt krúttið þitt!
Krúttí krúttí krútt..
” Knúsí knúsí knúsí – ég knúsa þig – þú knúsar mig ! ”
Engilráð rúlar!
mars 19, 2006 klukkan 1:05 pm
Thesuperficial.com er LANG skemmtilegasta síða í heimi, það er svo skemmtilegar fréttirnar, þeir koma alltaf með svo góð komment í enda hverrar fréttar
I love it
mars 25, 2006 klukkan 9:05 pm
Ég veit það! Þetta stelur alveg af manni svona 5 tíma!!
=)
En já ég rakst á linkinn einmitt á síðunni þinni Elín