febrúar 20, 2006...8:07 pm

Sjæning inn ðe næt

Jump to Comments

Obbosí, voðalega er langt síðan ég bloggaði! úff.. þetta er án efa mest notaða setningin sem er notuð í bloggheiminum nú til dags. Eins og má taka eftir er ég að reyna að fitta í hópinn. Ég þrái að vera kúl…

Ég hef verið frekar heiladauð undanfarið og erfitt er að ná sambandi við mig. Mér líður eins og feitum og heimskum kana. En eitt stykki símtal kætti mig mjög mikið rétt áðan. Það var hún Magga mín sem hringdi í kjeddluna sína =) Loksins.. var ánægð að heyra í henni! Hún var á leiðinni í skólann og við röbbuðum um allt milli himins og jarðar. Til gamans má geta að Margrét er orðinn sundkennari. Ójá, hún er að fara að kenna stelpu að synda. Já, það eru ófáir hæfileikarnir sem stelpan hefur. Fyrr en maður veit, verður hún farin að elda allan matinn fyrir mannskapinn í skólanum og jafnvel orðinn fastráðinn stærðfræðikennari, því Nýjóarnir eru rétt farnir að byrja að læra Pýþagorasarregluna.. Ohh ef lífið væri nú svo einfalt *dreym* Margrét ég öfunda þig! En mest öfunda ég Nýja Sjáland fyrir að hafa eignast yndislegan skiptinema!

Það er ekki neitt svaka að frétta nema ég er komin með nýja vinnu og er hér með orðinn opinber Hagkauplingur! Ég vann 4 daga í síðustu viku.. já ég er dugleg!

Ég hélt stelpukvöld hjá mér á föstudaginn síðastliðnum og að mínu mati heppnaðist það mjög vel og mottó kvöldsins var án efa: ” What sings here, stays here..” Þetta var samkomulag sem ég gat sætt mig við, og meira en það ;) Einnig var markmiðið að springa ekki úr ofáti… en fólk veit nú hvernig það fer þegar við stelpurnar sameinumst. Það endar á mesta nammi-fylleríi í sögu alheims.
Við hittum Robba á Dominos á föstudaginn og hreytti ég þetta úr mér : ” Heyrðu, má ég knúsa þig? Því sko ég sakna Möggu svo mikið og þú ert systir hennar ?” “Ehhh já ókei hehe” og ég knúsaði hana Huldu mína =) Ég er kjáni, ég veit.

Annars var helgin bara hundleiðinleg, vinna – sofa – vinna … Horfði á undankeppni Eurovision og guð minn góður hvað öll lögin voru ömurleg – nema Til hamingju Ísland. Þegar ég horfði á þetta fór ég að hugsa hvort fólk nú til dags sé bara svona hæfileikasnautt.. Hvert lag á fætur öðru var meira lestarslys en lagið á undan. Sérstaklega lagið með konunni í rauða kjólnum. Hvert einasta lag nema Til hamingju Ísland fær 0 stjörnur af 10 mögulegum. Hræðilegt.
Mér finnst mjög sniðugt að Silvía skuli fara til Aþenu því það er gert allt of mikið mál úr þessu Eurovision.. Ég t.d. hef ekki gaman af neinum lögum nema svona 2 í keppninni sjálfri. Mér finnst lögin hreint út sagt leiðinleg og léleg. Sérstaklega lagið sem vann í fyrra. Núna verður þetta kannski bara skemmtilegt eftir allt saman.. Þoli ekki þegar fólk tekur öllu allt of alvarlega.

Jæja, farin að klára fyrirlesturinn minn sem ég á að flytja í ensku á morgun =o( Gangi mér vel…. ég og fyrirlestrar erum ekki góð saman…

Bæ,

P.S. ég væri til í Sykurpúðahitting eða slíkt =) Búin að hanga allt of mikið heima að gera ekki neitt… Eða kaffihúsahittingur ? Mig dauðlangar í Frappuchino :o )

Lag dagsins: Trapt – Echo

19 Ummæli


Skildu eftir svar