Nú eru einungis tveir dagar í að Margrét nokkur Hanna Biggadóttir yfirgefi klakann og fari yfir til Nýja Sjálands eða Nýjó eins og ég kýs að kalla það. Þar mun hún búa og heilla landann næstkomandi 11 mánuði. Hún mun lifa hjá góðri fjölskyldu í úthverfi Auckland-borgar. Móðir hennar mun heita Cheryl og þar mun hún eiga tvær systur, 88´og 86´ árgangur. Bo og Hinemoana (vona að ég hafi skrifað þetta rétt). Einnig mun hún eiga sætan hund sem kallast Killer og er þekktur fyrir það að rífa hendur af saklausum börnum Aucklandborgar. Nei ég segi svona, hann er örugglega besta skinn… þegar hann er búinn að fá barnshendina sína! Ok, nú er ég hætt! Þetta verður æðislegur hundur, Margrét. Fyrirgefðu.
Ég er búin að vera mjög skapvond undanfarna daga/vikur og er þetta formleg afsökunarbeiðni til allra, þó helst Margrétar. Ég skammast mín fyrir að vera svona léleg besta-vinkona. Ég er ekki búin að vera voðalega jákvæð þessa dagana út af brottför þinni Margrét og þykir mér leitt að hafa ekki stutt þig meira undanfarnar vikur. Ég vildi styðja þig eins mikið og ég gat og held ég hafi gert það til að byrja með. Síðan þegar nær dró þá gerði ég mér grein fyrir því að þetta er raunveruleiki og að þú værir að fara og það var einmitt þá sem ég hefði átt að styðja þig meira. Þá varð ég leið og verð að viðurkenna að ég fór í algjört kerfi. Einhvernveginn fannst mér eins og þú myndir aldrei koma aftur, því eins og þú veist hef ég misst marga góða vini í gegnum tíðina á milli landa, en auðvitað kemur þú aftur! og ég var ekki alveg búin að gera mér grein fyrir því. Ég var vön því að vera sú sem væri að fara, nú varst það þú og því ekkert sem ég gat gert.
Þetta verður alveg æðislegt ár hjá þér og er ég ánægð að þú fáir tækifæri til að kynnast öðru en þessu litla landi sem við búum á, því það er heill heimur fyrir utan bíðandi eftir þér. Þú ert að stíga út úr verndarkúlunni eins og Laguna Beach crewið gerði þegar það útskrifaðist úr High-School og flutti frá Laguna Beach (Þúst The Bubble sem þau voru alltaf að tala um). Hehe sorrí, varð að koma sameiginlega áhugamáli okkar inní þetta. Kannski bíður eitt stykki Trey eftir þér á Nýja Sjálandi. Maður veit aldrei, fyrr en þú ferð þangað og sýnir Sjálendingunum hversu æðisleg manneskja þú ert. Ég öfunda sjálendingana í strápilsunum!
Ég man þegar ég kynntist þér í 10. bekk Réttó. Ég var nýja fíflið í skólanum og þekkti engan! En þið stelpurnar voruð svo elskulegar að taka mig að ykkur. REALLY!!! Ég var feimin fyrsta hálfa árið en samt höfðuð þið þolinmæði og á endanum kom ég út úr skelinni frægu! Ég skil ekki hvernig þið nenntuð að vera með mér þegar ég var svo drullufeimin! svona lengi! Mér fannst þú og ég mynda sérstaklega góð vináttutengsl. Hehe, ég man þegar við vorum skotnar í sama stráknum en samt vorum við áfram vinkonur, þótt smá erfiðleikar hafi komið upp. Ekkert er þess virði að maður gefi upp vináttu og allra síst þegar strákar koma nálægt. Því strákar eru kjánar og þeir koma og fara!
Þú ert frábær manneskja Margrét og langbesta vinkona mín! Þú ert alltaf til staðar þegar maður þarf á þér að halda, alltaf! Húmorinn þinn er svo gegnumsýrður og brjálæðislega fyndinn að maður getur ekki annað en velst af hlátri þegar maður er með þér. Það eru ófá skiptin sem við höfum drepist úr hlátri í stíganum heima hjá þér, út af ENGU! Við erum líka át-félagar, það er ótrúlegt hvað við getum borðað mikið. Ég verð til dæmis alltaf svöng þegar ég er heima hjá þér. Það er gaman að tæma frystikistuna heima hjá þér =D Við þurfum endilega að tæma hana saman áður en þú ferð svo ég passi inní hana þegar þú ferð, því eins og þú veist mun ég láta frysta mig þangað til þú kemur aftur, helst í frystikistunni heima hjá þér. Þú getur sagað eina hendina af mér og fært hundinum Killer þegar þú kemur til Aucklands. Hann mun dýrka þig allt árið. Þið gætuð jafnvel orðið át-félagar
Jæja til að gera stutta sögu stutta Margrét mín, þá mun ég sakna þín brjálæðislega mikið og ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvernig þetta ár á eftir að verða án þín, en svo framarlega sem þú skemmtir þér vel þarna úti og upplifir eitthvað nýtt, er það þess virði. Ég elska þig. Þú ert besta vinkona sem hægt er að hugsa sér.
Gerðu mér samt þann greiða að gleyma mér aldrei. Ég vona að við getum verið áfram í góðu bandi og ég ætla að fá mér webcam svo við getum flippað saman, þótt þú sért hinum megin við hnöttinn.
Vertu óhrædd og vertu þú sjálf, þá á allt eftir að ganga eins og í sögu.
Við bíðum hérna eftir þér á klakanum, ég myndi óska þess að þú gætir tekið mig með þér þangað út. En það er víst ekki hægt og bannað með AFS-lögum. Hrmpff..
Ég mun passa upp á The Pinkies og Sykurpúðana. Við hlökkum til að fá þig aftur heim!
Mundu að þú átt fólk hérna á klakanum sem elskar þig ótrúlega mikið.
Ég verð alltaf til staðar fyrir þig, þótt það sé langt á milli okkar.
Passaðu þig á sjálendingunum sem eru í sérstaklega stuttum strápilsum, strákum, kennurum og ekki labba of nálægt kletti. Þú verður að fara varlega, því ef þú slasar þig eitthvað þarna úti þa kem ég til Nýjó og lem þig!
Þegar þú kemur aftur mun ég bíða eftir þér með myndina “Sixteen candles” sem við ætluðum að horfa á áður en þú færir, en náðum ekki að gera! Já maður verður að standa við orð sín
Taktu myndir af öllu. Ég vil fá andlitsmyndir af hverjum einasta nemanda í skólanum þínum, mynd af húsinu, herberginu þínu, fjölskyldu, landslaginu, húsunum, hverfinu, skólanum, dýragarðinum, höfninni, miðbænum…. ehhh… pöddunum þarna, skýjunum, slökkviliðsmanni (hvernig ætli búningar þeirra séu?)
Ef kengúrur eru til í Nýjó þá myndi ég gjarnan þiggja mynd af kengúru.. og þér í kengúrupoka =) ÚLALA!!!
Jæja ók, taktu bara myndir af öllu!
Ég skal vera dugleg að blogga og segja hvað við erum að gera á klakanum og mun reyna að taka sem flestar myndir.. I will keep you updated.
Að lokum mynd af okkur vinkvensunum =)
Set inn myndirnar frá kveðjupartíinu og limmuni sem fyrst
Takk fyrir mig,
Kær kveðja,
Knús,
Móna…

6 Ummæli
febrúar 1, 2006 klukkan 1:16 am
Hahaha!!!
Móna ég elska þig sömuleiðis… Ég skal ekki slasa mig, því ég veit hvað þú lemur fast! ahahah!!!
Takk fyrir mig!!!!!!!
Þú ert ógó æði!!
Þegar ég kem heim tæmum við frystikistuna og horfum á bíó…
febrúar 1, 2006 klukkan 10:23 am
VÁH ! ég fékk kökk í hálsinn meðan ég las þetta !=(
Ég lofa Magga… Ég skal passa Mónu vel
Hún verður safe í sykurpúðahópnum !=*
Magga gerðu það ekki slasa þig… Systir mín fékk litla skrámu á löppina og var sett í risastórt gifs.. Ég veit ekki hvennig læknarnir eru þanna úti svo ekkert vera að fá skrámur !!! =D
febrúar 1, 2006 klukkan 10:23 am
VÁH ! ég fékk kökk í hálsinn meðan ég las þetta !=(
Ég lofa Magga… Ég skal passa Mónu vel
Hún verður safe í sykurpúðahópnum !=*
Magga gerðu það ekki slasa þig… Systir mín fékk litla skrámu á löppina og var sett í risastórt gifs.. Ég veit ekki hvennig læknarnir eru þanna úti svo ekkert vera að fá skrámur !!! =D
febrúar 2, 2006 klukkan 1:09 am
Það er gott að ást mín sé endurgoldin!
Nú get ég dáið hamingjusöm…
Skemmtu þér æðsla vel út í Nýjó sykurpúði
I love you more than anything my darling ;*;*;*;*;*;*
febrúar 2, 2006 klukkan 1:33 am
Móna þú ert bezt í heimi!!!
maí 8, 2007 klukkan 11:58 pm
ja krevetko! Vsem sasat’!