Já, þessi orð blöstu við mér þegar ég blaðaði í gegnum Blaðið í dag. Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, lét þessi orð falla! Jafnframt telur hann að siðareglur hafi ekki verið brotnar og að DV muni ekki endurskoða fréttastefnu sína í framhaldi af þessu máli. Fyrir þá sem vita ekki hvað ég er að tala um, þá svipti maður á sextugsaldri sig lífi á Ísafirði í gær, eftir að hafa verið ásakaður í DV um kynferðisbrot gagnvart ungum drengjum.
Þetta finnst mér algjör hörmung! Fólk kann sig ekki lengur nú til dags. Það heldur að það geti sagt og gert hvað sem er, án þess að það hafi áhrif á fólk því eins og allir vita er öllum sama um aðra en sjálfa sig. Fólk hugsar fyrst og fremst um að vekja athygli og sverta mannorð fólks. DV er besta dæmið um það!
Það sem mér finnst sérstaklega asnalegt við þetta er að DV er engan veginn að viðurkenna á sig sökina eða axla nokkurs konar ábyrgð heldur lætur út úr sér t.d. þetta: ” Það er ekkert hægt að gefa sér það að þetta sem gerðist sé bein afleiðing þess sem stendur í blaðinu.” Þau geta ekki einu sinni látið eins og fullorðið fólk, heldur þarf það að koma með svona smábarnatal! Ég hef aldrei vitað um annars konar lágkúru-pakk. DV gerir þetta bara til að selja selja selja.. Græða græða græða! Svona er samfélagið því miður orðið.
Ekki nóg með það þá var hann ódæmdur og rannsókn á frumstigi! Þetta voru eingöngu ásakanir, alvarlegar ásakanir – þetta er ekkert grín! Hvernig gátu þeir gefið sér það blessaða leyfi að birta myndir og nafn hans?
Eins og margir eru búnir að segja um þetta mál : Saklaus uns sekt er sönnuð !
Í augnablikinu skiptir ekki máli hvort hann hafi nauðgað þeim eða ekki. Hann var þegar dæmdur, af samfélaginu.. og DV ! Þetta leggur náttúrulega mannslíf í rúst eftir að heilt samfélag hefur útskúfað manni fyrir hugsanlega eitthvað sem maður gerði ekki einu sinni! Ísland er lítið samfélag, svona fréttist út mjög hratt og maður er aldrei látinn í friði eftir svona! Auðvitað gat hann ekki lifað við þetta!! Auðvitað hlaut að koma að þessu fyrr eða síðar. Eins og Hjálmar Árnason sagði var þetta ekki mannorðsmorð, heldur einfaldlega morð! Þeirra afsökun er að “satt má ekki kyrrt liggja.” Hvernig geta þeir haldið því fram að þetta sé satt, þegar þetta hefur ekki einu sinni verið sannað? Þegar DV getur ekki einu sinni beðist fyrirgefningar, í guðana bænum voðalega getur fólk verið siðblint.
Mér finnst að DV ætti að hafa eitt í huga, málfrelsi fylgir ábyrgð! og þeir hafa hvað eftir annað misnotað málfrelsi sitt. Ef DV verður ekki kært, þá verð ég alveg brjáluð. Þau geta og mega ekki komast upp með slíkan ruddaskap.
Í dag hafa safnast tæplega 13.000 undirskriftir til mótmæla við DV! Það er gott að fólk láti í sér heyra, því þetta er ekkert bara eitthvað sem kemur fjölskyldu fórnarlambsins við, heldur öllu samfélaginu. Hvaða skilaboð sendir það til okkar að fólk skuli komast upp með slíkt ?
Ég hef aldrei haft mikið álit á DV. Á hverjum einasta degi birtast fáranlegar fyrirsagnir sem eiga að kvetja mann og fá mann hreinlega til að hlaupa út í búð að kaupa þennan klósettpappír. Það ætti að leggja þetta blað niður og reyndar hefði átt að gera það miklu fyrr. Þetta er ekki blað, þetta er bara kjaftæði!
“Við segjum fréttir og þær eru réttar!”.. Enn ein lygin sem staðfestir það hvað DV er mikið lygablað. Mér finnst þetta comment frá Jónasi nánast hlægjilegt.
DV reynir að vera sem mest -krassandi- .. Til hamingju, þetta tókst nú heldur betur hjá ykkur !
Endilega bætið nafni ykkar við undirskriftalistann!
Aðrir hafa sagt skoðun sína á málinu, þ.a.m hann Þórhallur minn og endilega tjékkið á því HÉR!
Hingað og ekki lengra!
-Veriði sæl og blessuð-
Móna kveður að sinni!
3 Ummæli
janúar 12, 2006 klukkan 4:05 pm
hæ Móna


Gaman að sjá hvað þu ert dugleg að blogga stelpa
Þar sem að eg fann enga gestabók þá akvað eg bara svona að skrifa i commentið hjá þer
Hafðu það gott
Knús Ruth
janúar 12, 2006 klukkan 9:03 pm
Niður með DV…. elsta enn-lifandi fréttablað Íslands ætti að vita betur!
Við seljum það ekki lengur
janúar 12, 2006 klukkan 9:33 pm
Ruth Ingólfsdóttir: Blessuð Ruth mín
Voðalega langt síðan við höfum hist… Verðum að fara að drífa í því !
;*
Margrét Hanna Birgisdóttir: Hagkaup að gera góða hluti, já Hagkaup að gera góða hluti! ég endurtek, Hagkaup er að gera góða hluti !
Kveðja,
Móna Róbertsdóttir Becker