október 31, 2005...10:33 pm

Deutschland, Deutschland

Jump to Comments

Mér líður skringilega… Einhvernveginn svona blanda af sorg en samt sem áður kærleik. Já gott fólk, ég verð að vera væmin núna. Ohh great, er að hlusta á fm í augnablikinu og var ekki Nickelback – Photograph að byrja ! Tilviljun eða ofsókn? Ég var einmitt að skoða myndir af vinum mínum frá þýskalandi. Ekki nóg með það (neheijj) þá var ég að tala við tvo vini mína rétt áðan í fyrsta skiptið síðan ég hitti þá síðast fyrir 1 og hálfu ári. Það liggur við að ég fari að tárast. Ég hef hugsað svo oft til þeirra Egor og Hamed, in fact um alla þessa blessuðu og æðislegu vini sem maður ólst upp með. Loksins eftir allan þennan tíma talaði ég við þessar snúllur! Þeir eru svo miklir snillingar að hálfa væri nóg. Þegar ég hugsa tilbaka man ég hvað við skemmtum okkur æðislega vel þegar við hittumst aftur þetta örlagaríka sumar! Sumarið sem fór svo illa en samt svo frábærlega í mig! Við Egor og Hamed erum búin að ákveða það að hittast næsta sumar og hlakka ég til!
Það er alveg ótrúlegt hvað manni getur þótt vænt um ákveðnar manneskjur. Hvar væri ég ef ég hefði ekki kynnst Lenu og Dominic þegar ég var 5 ára ? Öll þessi ár sem við höfum þekkst og gengið í gegnum allt… í alvörunni talað.! Þetta eru manneskjur sem ég mun aldrei gleyma og á erfitt að vera án. Fólk getur ekki ímyndað sér hvað það er erfitt að búa trilljón kílómetra frá fólkinu sem maður elskar!
Ég hef verið í góðu bandi við Lenu litlu. Hún kemur til Íslands næsta sumar og verður í smátíma og síðan fer ég aftur með henni til Þýskalands. Ég verð og mun fara. Ég elska þessa stelpu!
Því miður hef ég ekki talað við Dominic mjög lengi. Hann á í erfiðleikum núna og er mjög erfitt að ná í hann. Ég elska hann!
Allt þetta fólk sem maður skilur eftir, veistu það, að þetta er hneyksli og það ætti að banna svona rugl!
Þótt að Þýskaland sé langt frá því að vera fullkomið og og og þá eru þetta samt sem áður heimkynni mín… That´s where my heart is ! hehehe ok þetta var kannski einum of, en common, ég er í væmnu stuði.
Ég get svo svarið það að minningar ofsækja mig… En í rauninni eiga minningar ekki að vera svona drullu særandi! Það sem var gott er núna orðið vandamál því maður getur ekki hætt að hugsa um það..
Ók þetta er að verða soldið langt blogg hjá mér.. en jæja..
Ég man þegar Lena og ég ákváðum þegar við vorum svona 6 ára að við myndum flytja saman þegar við værum orðnar “stórar”. Helst til Stuttgart! Þetta hefur alltaf fylgt okkur og hefur hvorug okkar gleymt því né hætt að hugsa um það. Um daginn fórum við að tala um þetta af alvöru og ég verð nú bara að segja að ég er alvarlega að spá í að láta þetta gerast.

Lena, þessi manneskja er ótrúleg :*

Dominic er náttla bara Dominic, þarf ekki að segja meira :*

Lag dagsins: Massive Töne – Deutschland, Deutschland

Svona í tilefni væmninnar,
Lifiði heil,
Auf Wiedersehen

Móna Þjóðverji

P.S. Þið Íslendingar eruð ágætir.

6 Ummæli


Skildu eftir svar