A: Yep !
Ég hef ákveðið að auka við mig í heimasíðum, þar sem ég á svo ótrúlega fáar. Ég er kaldhæðin. Ég er mikið fyrir breytingar, greinilega. Þar sem ég hef lokið við heimsreisu mína í bili hef ég ákveðið að halda ótrauð áfram í bloggveröldinni miklu. Ég hef þörf fyrir því að tjá mig. Ég hef skoðanir. Og það sem er lykilatriðið í þessu öllu saman: Ég hata blog.central.is… Það kjaftæði gerir ekkert annað en að hvetja mann til að skrifa eitthvað hundleiðinlegt og innihaldslaust. Ég veit ekki afhverju. Hugmyndirnar flæða út úr baðkarinu þegar ég loks fæst til að blogga á blog.central.is/becker… Það eina sem manni dettur í hug er eitthvað gelgjulegt. *OMG* *TÍHÍ* *Ég var að kaupa mér buxur* *Ég er svo kúl, ég fór á gaukinn*.. Því satt er það að flest blogg sem spannar blog.central.is-veröldina er innihaldslaust, sem ég nenni ekki að lesa. Hvað þá að skrifa það niður. Svoleiðis kalla ég tímaeyðslu. Þó verð ég að segja, að innst inní dimmum hornum leynast skemmtileg blogg! Jahá!
Einnig er blog.central ekki mac-vænt og ég er þekkt fyrir það að fíla ekki PC tölvur ![]()
Það sem hvatti mig til þess að byrja aftur að blogga var góð vinkona mín, svona kændoff besta vinkona mín, sem er algjör snillingur í skrifum á hinum og þessum stöðum. Hún festi sig í rætur blogspot hér um daginn og er að blómga þar eins og hið besta blóm! Jahá.. Hér má skoða blogg þeirrar stórfenglegu en þó lítilli bloggdrottningu.
Ástæðan fyrir því að titillinn á síðunni er God loves ugly, er sú að ég dáist af rappara sem kallar sig Slug. Hann er í Atmosphere ásamt honum Ant sem er einnig gargandi talented. God loves ugly er diskur sem þeir gáfu út árið 2002. Það er eitthvað við nafnið á plötunni, sem ég fíla. En þaddna hafið þið það!
Góð vinkona mín á afmæli í dag og vil ég bara óska henni aftur til hamingju. Congrats Tinnið mitt :*
Ég kveð að sinni,
Móna

7 Ummæli
júlí 21, 2005 klukkan 12:42 am
Frábært!!! Ég er allveg sammála þér um að blog.central.is sé úrgangur og það á priki!!! Þar er eitthvað gestabókakrapp sem enginn nennir að skrifa í… og hugmyndasneiðandi litasamsettningarugl. En God loves ugly er frábær síða hjá þér
Guð elskar mig þá eftir allt saman
júlí 21, 2005 klukkan 12:47 am
Me 2
ágúst 13, 2005 klukkan 4:48 pm
blogg!!! you can do it!
ágúst 22, 2005 klukkan 10:50 pm
Þetta er allt að koma! Bráðum fer maður að hafa tíma til þess að blogga aftur
Ætli maður bloggi ekki á morgun
ágúst 29, 2005 klukkan 5:35 pm
hehemm… á morgun já…!!
sé að þú sért orðin blá hérna og læti… þetta er bara að verða virkasta óvirka bloggsíðan og blogspot.com… hehe
ágúst 29, 2005 klukkan 10:11 pm
Só mötss tú dú, só littel tæm
ágúst 29, 2005 klukkan 10:13 pm
hehe þetta var ég btw..
–>